Afmæli - Leigist 1 klst. í Litlu Björk og hálf klst. í veitingasal ( Félagsheimili ).


Regular price 24.990 kr

Loading schedule...

Vinsamlega lesið vel:

Salur með púðagryfju, trampólíni o.fl. Tilvalið að hamast í klukkutíma áður en farið er í afmælissalinn.

Leigist 1 klst. í Litlu Björk og hálfa klst. í veitingasal ( Félagsheimili ).
Hleypt er inní Litlu Björk frá þeim tíma sem leigt er.
Hleypt er inní Veitingasal til undirbúnings,15 mín. fyrir flutning gesta milli sala. 

Reglur fyrir leigutaka

Litla Björk og afmælissalur:

Kynnið ykkur umgengnisreglur sem hanga uppá vegg þegar komið er inní salinn.
–  Hámarksfjöldi í Litlu Björk er 30 manns.
–  Skilyrði að það sé a.m.k. einn fullorðinn einstaklingur (20 ára) á hver 10 börn inni í Litlu Björk.
–  Leigutaki ber fulla ábyrgð á þeim einstaklingum sem eru á þeirra vegum í Íþróttamiðstöðinni Björk.
–  Púðagryfjan er einungis 1,2 metrar á dýpt og því stranglega bannað að taka púða uppúr gryfjunni og gætið þess að nóg sé af púðum þar sem verið er að stökkva í grifjuna.
Öruggast er að lenda ekki standandi í gryfjunni.
–  Gætið vel að börnunum því auðvelt er að slasa sig ef ekki er farið varlega.
–  Leigutaki er ekki með báða salina í einu heldur leigir hann annan salinn fyrsta klukkutímann og hinn salinn seinni hálftímann þannig að börn og forráðamenn þurfa að færa sig saman milli sala.
–  Innifalið í leigugjaldi er eingöngu aðgangur að Litlu Björk og Afmælissal og aðstöðu þeim tengdum.
–  Gefnar eru 15 mínútur í undurbúning fyrir afmælissalinn.  Það er því opnað þangaði inn 45 mín. eftir að veisla hefst.
–  Leigutaki kemur með sinn eigin borðbúnað og veitingar.  Mælt er með því að fólk komi með pizzur/kökur og noti plastglös og plasthnífapör.
–  Aðgangur er ekki að eldhúsi en hægt er að fá lánaðar könnur til að blanda í djús.
–  Leigutaki skilar salnum af sér eins og hann tekur við honum, sópar, hendir rusli, þurrkar af borðum og skilar viðbótar stólum og borðum.